Sorglegra en tárum taki.

Það á enginn einhverja manneskju, við erum öll einstaklingar og elskuverðar manneskjur og eigum rétt á því að vera hamingjusöm. 

Það hugarfar sem býr að baki þessum voðaverknaði er mér að öllu óskiljanlegur en er því miður langt frá því að vera einsdæmi.  Ég veit það í hjarta mínu að þeir sem fremja slíka glæpi hljóta að upplifa helvíti á jörðu og aðstandendur þeirra sem eftir lifa líka.

Við verðum að vona að með tímanum muni réttarkerfið vinna á í þessum málum og stoppa slíka verknaði. 


mbl.is Dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir sæmdarmorð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er dapurlegt allt saman, en við skulum ekki óska aðstandendum þessara ódæðismanna neinns ills - þeir eru jafn miklir einstaklingar og þessi unga stúlka

hafið góðar stundir

Jon

Jón (IP-tala skráð) 20.7.2007 kl. 13:07

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Sæll Jón

Það sem ég á við að aðstandendur eru alveg eins fórnarlöm í þessum málum.  Fólk sem er á milli steins og sleggju. 

Ester Sveinbjarnardóttir, 20.7.2007 kl. 13:13

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

þessi "heiðursmorð" eiga sér skýringar sem við getum fundið í evrópskri miðaldasögu. Þetta er vegna þess að ef einhver gifstist "röngum" aðila þá á hinn sami rétt á arfi stúlkunnar og jafnvel tilkall til eigna sem reynt er að halda innan ættarinnar.. því miður þá virðist þetta vera landlægt í mörgum múslimskum löndum eins og Pakistan, afghanistan 
og austur tyrklandi.  Þessir menningarheimar stangast síðan á við okkar nútímaþjóðfélag

Óskar Þorkelsson, 20.7.2007 kl. 13:16

4 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Sæll Óskar

Auður og völd hafa oft á tíðum reynst mönnum bannvænn kokteill.   Það að telja sig eiga og geta ráðstafað öðrum ber merki um vanþroska að mínu mati.

Ester Sveinbjarnardóttir, 20.7.2007 kl. 13:18

5 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Sem betur fer Hanna Birna.  En við íslendingar getum litið til Sturlunga til að sjá sambærileg dæmi.

Ester Sveinbjarnardóttir, 20.7.2007 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband