Áhugavert, verður þá Jóhanna bæði forseti og forsætisráðherra síðasta árið í ríkisstjórn

Ég sá það á DV að fólk hefði kosið Þóru sem fyrsta kost í skoðunarkönnun þar á bæ. Mér finnst þetta áhugaverð niðurstaða sér í lagi þegar fólk veit það að Jóhanna Sigurðardóttir verður bæði handhafi forsetavalds og Forsætisráðherra þegar Þóra er í fæðingarorlofi.

mbl.is Þóra ætlar í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myntuplöntur til sölu úr heimaræktun

Ég er með nokkrar lífMynta 001rænt ræktaðar fjölærar myntuplöntur til sölu, enginn tilbúinn áburður eða skordýraeitur. Fínt að hafa þær inni í vetur og skella þeim svo út í vor í garðinn eða á svalirnar. Það er skemmtilegt að geta notað eigin framleiðslu, svo er líka notalegt að hafa grænt í kringum sig í eldhúsinu svona yfir háveturinn.

Tvær plöntur í pottinum á 850 kr. Tvær fyrir eina. Gott að setja eitt til tvö lauf í klakavatnið, mjög duglegar að vaxa. Góðar í teið í Mojito drykkinn og sem krydd á lambið svo eitthvað sé nefnt. Mundu að það besta og ferskasta gerir gæfumunin fyrir heilsuna.

GSM 615 7789


Bann við sölu á myntu, hvítlauki, steinselju og fl. jurtum!!!!

Þetta er ekki grín færsla, heldur bláköld staðreynd.
Ætlum við að apa upp eftir misvitrum stjórnmálamönnum í Evrópusambandinu, Bandaríkjunum og Kanada og banna náttúrujurtir? Hér eru auðhringir lyfjafyrirtækjanna að eyðileggja aldargamla þróun mannkyns í náttúrulækningum með því að misnota sér heimska stjórnmálamenn til að banna sölu á jurtum.

Sameinumst gegn þessari valdnýðslu og skoðum þennan link:

www.savenaturalhealth.eu

þar er kynningarmyndband á ensku um þessar aðgerðir og einnig er hægt að mótmæla þessu með undirskrift ef þið hafið áhuga.
Sýnum samstöðu!


"Fjölræði" og orðskrípi í lögum!

Það er ekki einu sinni hægt að googla orðin sem ríkisstjórnin telur skýra mál sitt best í nýjum fjölmiðlalögum sem liggja nú fyrir Alþingi. Er hægt að fjarlægast þjóðina meira?
Fyrst þegar ég sá þetta orð "fjölræði" datt mér í hug að hér væri átt við róður á árabáti eða fjölæringi. Því næst datt mér í hug að hér gæti verið átt við þann sem vill öllu stjórna, en ræður ekki við neitt.
Þetta aftur leiddi hugann að frétt sem ég las fyrir stutt sem fjallaði um lagasetningu sem Rússar vilja innleiða. Sú löggjöf er að banna þegnunum alla notkun á netmiðlum eins og SKYPE, Hotmail og öðrum óstjórnalegum samskiptaþræðum. En viti menn þetta lagafrumvarp íslensku ríkisstjórnarinnar er líka um það að ná böndum yfir íslenska netmiðla. Fimm manna nefnd (alræðisnefnd) ætlar að sitja yfir umferð á netinu, starfar óðháð öðru stjórnvaldi og sjá um með boðum og banni að menn fjalli ekki um hatursáróður.

Mig setur hljóða!

Hvað er að gerast á ríkisstjórnarheimilinu!!!

Erum við ekki lýðræðisríki?


mbl.is Undirskriftir gegn fjölmiðlalögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látið ekki ósanngjarna umfjöllun eyðileggja fyrir þjóðinni

Fylgið ekki í spor Samfylkingarinnar undir forustu Jóhönnu Sigurðardóttur sem sendin niðurrífandi skilaboð til heimspressunnar, eins og sjá má í umfjöllun bbc. http://bbc.co.uk/news/business-13029210,  Johanna Sigurdardottir, Iceland's Prime Minister, said the rejection meant "the worst option was chosen" and had split the country in two.

Þjóð í vanda kreppu þarf ekki á svona fólki að halda sem forsvarsmenn hennar, blandið ykkur ekki í hennar hóp.


mbl.is Boltinn hjá ríkisstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólafur Ragnar Grímsson er minn forseti, vona að hann bjóði sig fram aftur.

Það er ofarlega í huga mér þakklæti fyrir að Herra Ólafur Ragnar skuli verja lýðræði á Íslandi.

mbl.is Þurfum kannski að skipta oft um þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Icesave samningurinn er hætta við fullveldi þjóðarinnar.

Fram kemur í fyrirliggjandi samningi Icesave nr. 3 að geti íslenska ríkið ekki greitt samkvæmt samningnum hafi Bretar og Hollendingar rétt til að ganga að eigum íslendinga á Íslandi.
Við búum við þá staðreynd að fólkið í landinu sveltur vegna ofurálags frá fjármálakreppunni, börn og gamalt fólk getur á engan hátt borið hönd fyrir höfuð sér. Getum við sem eru í ábyrgð fyrir framtíð landsins samþykkt það að einkafyrirtæki hirði gróða af bankastarfsemi en þjóðnýti tapið. Þessi hagfræði að ganga sífellt í vasa skattborgarans gengur einfaldlega ekki upp. Heimili landsins standa tæpt og þola ekki meiri álögur. Ég segi nei við Icesave og Já við framtíð íslands og gef vinum okkar almenningi í evrópu von um betra hagkerfi í framtíðinni.

Það að Vigdís segir já eins og Björgúlfsfeðgar undrar mig ekki, hér í landi eru tvær þjóðir, þeir sem lifa af skattpeningum okkar og dansa í kringum hirð evrópubandalagsins og við hin sem þurfum að eyða öllum stundum til að eiga fyrir salti í grautin. Þessi sama hirð notar skattpeninga okkar til að greiða niður fyrir sig menningartengd efni eins og leikhús, tónleika og listaviðburði margs konar.
Er einhver sanngirni í því að einstæðar mæður og gamalmenni niðurgreiði af sínum tekjum leikhúsmiða fyrir Vigdísi Finnbogadóttur meðan þau svelta?
Þetta er skömm Elítunnar, við erum þjóð sem ekki einu sinni getum varið saklausa borgara fyrir síauknum glæpum á götunni. Er ekki tímabært að vakna af Þyrnirósarsvefninum?


mbl.is Vigdís styður samninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband