Umferðahnútur

Í bílalest og bílar mjakast
bara eitt hænufet.
Tíminn líður taugar þjakast
taugaveiklun setur met.

Þolinmæðin þrautir vinnur allar
þar með talinn bílaorm.
Við stýrið vinnan okkur kallar
við þolum illa svona dorm.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú nýtir greinilega vel tímann sem líður í biðröðum.   skrítið hvað veður og aðstæður koma fólki sífellt á óvart.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.3.2007 kl. 14:09

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Ég bý í Grafarvogi, þar er oft þung og erfið umferð, gatnakerfið annar engan veginn umferðinni sem er þar.  Í morgun tók það mig 45 mínútur að keyra leið sem yfirleitt tekur 2 mínútur, þá dundaði ég mér við að yrkja ;)  Hálkan var svo mikil þeir sem fóru ekki varlega lentu í tómu tjóni.

Ester Sveinbjarnardóttir, 27.3.2007 kl. 14:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband