20.7.2007 | 14:21
Vinna skemmdarverk til að deila á skemmdaverk
Ég get aldrei skilið hvernig fólk getur réttlætt það að skemma eignir og valda náttúruspjöllum með spilefnum (málningu). Til að vekja athygli á umhverfisvernd. Ef viðkomandi aðila myndu ganga um umhverfi sitt af alúð og stunda vistvernd í verki hefði það meiri áhrif á heildina en með því að skaða aðra. Málið er að þorri fólk sem kemur fram undir merkjum umhverfisverndar er haldið stórkostlegri athyglissýki og skemmdarfýsn og fær útrás fyrir hvatir sínar í svona aðgerðum.
Málningu slett á ræðisskrifstofu Íslands í Edinborg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Tjah spilliefnum?
Það er nú til umhverfisvæn málning, og ef einhverjir nota hana þá eru það líklega umhverfisverndarsinnar
Haukur Viðar, 20.7.2007 kl. 14:51
Það vita það allir að málning er spillefni, þó svo það sé eitthvað sem fær heiti umhverfisvæn, er það meira í orði en á borði. Umhverfi okkar er líka húsin sem við búum í og störfum í. Því er það sjónmengun að skemma byggingar og væntanlega verur t.d. ekki hægt að hreinsa lím úr skrá og læsingum hússins, svo þar fara verðmæti á öskuhauga löngu fyrir aldur fram og veldur mengun.
Ester Sveinbjarnardóttir, 20.7.2007 kl. 15:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.