25.12.2007 | 12:17
Jólakveðja
Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt
sem dropi breytir veg heillar skálar.
Þel getur snúist við atlot eitt
aðgát skal höfð i nærveru sálar.
Svo oft leynist strengur í brjósti sem brast
við biturt andsvar gefið án sakar.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast
sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Ben, úr Einræðum Starkaðar).
sem dropi breytir veg heillar skálar.
Þel getur snúist við atlot eitt
aðgát skal höfð i nærveru sálar.
Svo oft leynist strengur í brjósti sem brast
við biturt andsvar gefið án sakar.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast
sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Ben, úr Einræðum Starkaðar).
Hugleiðsla | Breytt 17.12.2007 kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.12.2007 | 12:17
Fæðing Jesú
Um þetta leyti skipaði Ágústus keisari í Róm svo fyrir að allir þegnar í víðlendu ríki hans skyldu borga skatt. Þess vegna varð hver maður að láta skrásetja sig á þeim stað eða í þeirri borg þar sem hann átti ættir sínar. Jósef varð því að fara um langan veg, eða alla leið frá Nasaret í Galíleu og til borgarinnar Betlehem í Júdeu til að láta skrá sig og Maríu heitkonu sína. En María var alveg komin að því að fæða barnið sitt. Þetta langa ferðalag var afar þreytandi fyrir hana. Þegar þau komu loksins til Betlehem var gistihúsið yfirfullt og hvergi hægt að fá inni. Jósef og María voru fátæk. Þau fengu að gista úti í gripahúsi, en þar áttu uxinn og asninn bása sína. Þegar þau komu þangað var María við það að fæða. Og hún fæddi son sinn, klæddi hann og lagði í jötu. Þessa sömu nótt voru hirðingar úti í haga skammt frá Betlehem og gættu þeir hjarðar sinnar. En skyndilega varð himininn albjartur sem dagur væri og engill stóð fyrir framan þá. Hirðingarnir urðu hræddir. Ég flyt ykkur miklar gleðifréttir, sem allir munu fagna. Í dag er frelsari fæddur í Betlehem. Hann er Messías, Drottinn. Og þetta er merkið sem þið skuluð fara eftir: Þið munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu. Skyndilega var með englinum fjöldi annarra engla sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum og firður á jörðu hjá þeim mönnum sem hann elskar. Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himna sögðu hirðingjarnir hver við annan: Við skulum fara til Betlehem og sjá það sem hefur gerst og Drottinn lét okkur vita um. Þeir héldu af stað í skyndi og fundu Maríu og Jósef og nýfædda barnið sem lá í jötu. Þegar þeir höfðu séð allt þetta sögðu þeir frá því sem englarnir höfðu sagt þeim. Allt var þetta eins og englarnir höfðu sagt. María og Jósef gáfu drengjunum sínum nafnið Jesú eins og engillinn hafði mælt fyrir um.
(Endursögn jólaguðspjallsins)
Trúmál og siðferði | Breytt 17.12.2007 kl. 23:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2007 | 12:17
Þorláksmessa
Þorláksmessa á sumri 20. júlí, lögleidd 1237 í minningu þess að þann dag 1198 voru upp tekin bein Þorláks biskups helga Þórhallssonar í Skálholti. Ein mesta hátíð ársins fyrir siðaskipti. 1) Þorláksmessa 23. desember, dánardagur Þorláks biskups 1193. Messa lögleidd 1199.
Þjóðtrú og veður | Breytt 17.12.2007 kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.12.2007 | 12:17
Gullkorn
Kenn þú mér, svo hugsanir mínar verði speki, tilfinningar mínar elska, og vilji minn verði kraftar. (úr ávarpi til meðlima Guðspekifélagsins eftir Annie Besant).
Hugleiðsla | Breytt 17.12.2007 kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2007 | 00:15
Sólstöður
sólstöður (sólhvörf), sú stund þegar sól kemst lengst frá miðbaug himins til norðurs eða suðurs. Sólstöður eru tvisvar á ári, á tímabilinu 20.-22. júní og 20.-23. desember. Um sumarsólstöður er sólargangurinn lengstur, en um vetrarsólstöður stystur. Breytileiki dagsetninganna stafar fyrst og fremst af hlaupársdögunum sem skotið er inn vegna þess að almanaksárið er ekki jafnlangt árstíðaárinu. Nafnið sólstöður vísar til þess að sólin stendur kyrr, þ.e. hættir að hækka eða lækka á lofti.
Í stjörnufræði eru sólstöður skilgreindar sem það augnablik þegar miðbaugslengd sólar er 90° eða 270°. Lengdin reiknast frá vorpunkti og munar litlu á þessari skilgreiningu og þeirri sem fyrr var gefin.
Í stjörnufræði eru sólstöður skilgreindar sem það augnablik þegar miðbaugslengd sólar er 90° eða 270°. Lengdin reiknast frá vorpunkti og munar litlu á þessari skilgreiningu og þeirri sem fyrr var gefin.
Þjóðtrú og veður | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
17.12.2007 | 23:39
Gullkorn
Þekking er huglausum manni jafn fánýt og blindum manni spegill. (úr Vedabókum).
17.12.2007 | 23:38
Gullkorn
Rétt eins og hjólið fer í för þess, sem dregur kerruna, fer þjáningin á hæla þess, sem talar eða gerir eitthvað af illum hug. (Dhammapada)