16.1.2008 | 22:37
Gullkorn
15.1.2008 | 16:08
Lifðu lífinu eins og þú eigir bara þennan eina dag eftir
![]() |
Ástþór kærir Þórunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.1.2008 | 15:56
Gullkorn
15.1.2008 | 15:53
Sit súr heima
Ég byrjaði árið á því að fara i Rope yoga í Listhúsinu í Laugardal. Í einu orði sagt yndislegt að byrja daginn þar. Ég mæti kl. 6, er 3var í viku og ætlaði að synda með þessu, kyrrsetan í vinnunni er of mikil fyrir einn líkama að þola. En illu heilli gerðist eitthvað með bakið á mér í morgun, svo ég er búin að liggja á hitapoka og jéta bólgueyðandi töflur sem borist hafa inn á heimilið með íþróttagarpinum. Ég held að þetta sé meira á sálinni, pirringur yfir því að geta ekki gert það sem ég er vön að gera, frekar en eymslin séu að angra mig, ég er eins og þeir sem þekkja mig vita ekki týpan sem vil eyða dögunum í ekki neitt.
Ég er að vinna á skrifstofu frá 9 til 18.00 virka daga, stunda hugleiðslu yoga á morgnana og tvisvar í viku í setrinu. Svo er að Rope Yogað 3 í viku. Ég er í fullu meistaranámi sem er kennt í fjarnámi. Ég er að prjóna norska ullarpeysu fyrir þann litla, er búin að hekla 6 trefla á árinu, halda uppá eitt afmæli ég er í tveimur saumaklúbbum, og einum klúbb til. Ég er að semja vísur, þýða og skifa niður minningabrot.
En í dag sit ég ein með hugsunum mínum og hlusta á róandi malið í kettinum, sem notar tækifærið og hringar sig við hliða á mér í rúminu. Hún er búin að vera mjög upptekin af því að minna heimilisfólkið á að hún er aðaldýrið á heimilinu eftir að hamsturinn kom með jólasveininum. En vafalaust er hún rétt eins og við þakklát fyrir að þetta var þó hamstur en ekki nashyrningur.
Hreyfing | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.1.2008 | 20:04
Gullkorn
13.1.2008 | 19:12
Lífsgæði vs. samanburður
Ef maður er temur sér það að miða sig við aðra sem standa verr en maður sjálfur, þá hefur maður það hlutfallslega gott. Þessi aðferðafræði segir ekkert um hin sönnu lífsgildi eða hvort einstaklingur hefur höndlað hamingjuna. Samt er þetta sú gildra sem flestir falla í og nota sem hækju í gegnum lífið.
![]() |
Drykkjusiðir Íslendinga orðnir meinlausari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.1.2008 | 11:42
Gullkorn
Brostu og lífið brosir við þér.