Gullkorn

Öll fegurð hlutanna stafar af fegðurðinni í sálinni.  Þannig leiðir sköpunarverkið okkur á braut hins fagra til Guðs.

Gullkorn

Fegurðin er eitt af þeim fágætu undrum sem fær vantrú okkar til að hljóðna.
Jean Anouvilh


Gullkorn

 Betri er einn dropi af list en haf af viskur
                                              Þýskur málsháttur


Sumir eru hreinlega ekki feigir.

HaloMikið getum við verið stolt af okkar hjálparsveitafólki, alltaf tilbúið að koma mannslífum til bjargar.  Annars alveg lygilegt hversu maðurinn slapp vel þarna fyrir horn.

 


mbl.is Bjargað úr sjálfheldu á klettasyllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður í loftbelg.

Maður í loftbelg sá að hann var að missa hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar: Afsakið, geturðu hjálpað mér? Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki hvar ég er.

Konan svaraði: Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð, milli 40. Og 41. Norðlægrar breiddargráðu og milli 59. Og 60. vestlægrar lengdargráðu.

Þú hlýtur að vinna við tölvur, sagði loftbelgsmaðurinn.

Það geri ég, svaraði konan. Hvernig vissirðu það ?

Nú, svaraði maðurinn, allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp að þér. Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína.

Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við stjórnun.

Já, sagði maðurinn. En hvernig vissir þú það?

Nú, sagði konan, þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara. Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern veginn mín sök.



Klárlega skortu á einhverju öðru hugmyndum

Vits er þörf
þeim er víða ratar.
Dælt er heima hvað.
Að augabragði verður
sá er ekki kann
og með snotrum (Hávamál)

Hann þarf klárlega að hitta okkar ástkæru snotru mannanafna nefnd.


mbl.is Vill nefna soninn eftir uppáhalds bjórnum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gullkorn

Tíminn er afstæður, þegar allt leikur í lyndi flýgur hann hratt en lötrar áfram ef illa gengur

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband