10.3.2008 | 21:20
Grásleppa og rauðmagi
Mér finnst gott að smakka rauðmaga á vorin, en grásleppan er ekki góður matur, nema auðvitað hrognin sem er herramannsmatur. En gaman að fylgjast með árstíðarskiptum veiða, voandi gengur vertíðin vel, það er búið að gefa á bátinn hjá sjómönnum sl. ár.
![]() |
Græjað á grásleppuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Nýjustu færslur
- Áhugavert, verður þá Jóhanna bæði forseti og forsætisráðherra...
- Myntuplöntur til sölu úr heimaræktun
- Bann við sölu á myntu, hvítlauki, steinselju og fl. jurtum!!!!
- "Fjölræði" og orðskrípi í lögum!
- Látið ekki ósanngjarna umfjöllun eyðileggja fyrir þjóðinni
- Ólafur Ragnar Grímsson er minn forseti, vona að hann bjóði si...
- Icesave samningurinn er hætta við fullveldi þjóðarinnar.
- Ísland á hraðleið til Kommúnisma
- Nei við Icesave
- Það þarf að fara fram ítarleg skoðun á framgöngu fjármálaráðh...
- Sagan er ekki öll sögð varðandi heildarskuldir sem falla á rí...
- Starfsgreinasambandið hvetur til sundrungar meðal félagsmanna...
- Almenningur fær kaldar kveðjur frá Alþingismönnum!
- Opið bréf til Jóhönnu og Steingríms vegna sprengigossins í Ey...
- Hvar er gott að fara með hóp af fólki að borða fyrir austan f...
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
Agný
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Böðvarsdóttir
-
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Brynjar Svansson
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eva Margrét Einarsdóttir
-
Eyjólfur Sturlaugsson
- Ferðamálafélag Ölfuss
-
Finnur Jóhannsson Malmquist
-
Georg Eiður Arnarson
-
Gísli Tryggvason
-
Guðjón H Finnbogason
-
Guðný Einarsdóttir
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Heiða Björg Scheving
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herra Limran
-
Huld S. Ringsted
-
Jóna Guðmundsdóttir
-
Jón Magnússon
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Jón Svavarsson
-
Jón Valur Jensson
-
Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar
-
OM
-
Ólafur fannberg
-
Pálmi Gunnarsson
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurður G. Tómasson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sigurður Þórðarson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Steinn E. Sigurðarson
-
Sunna Dóra Möller
-
Svava frá Strandbergi
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Toshiki Toma
-
Vilborg Traustadóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Þórarinn Eldjárn
Apríl 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl Ester. Ég var einmitt að lesa þessa frétt og fékk svona vægt bakslag
því hugurinn hvarf til þeirra ára sem ég var grásleppukarlskerling og þá var þetta aðaltíminn. Það kemur mér á óvart að búið sé að setja dagakvóta á grásleppuveiðina. Vissi að vertíðin í fyrra var léleg. Ég er sammála með rauðmagann hann er sannarlega vorboði og gott að smakka hann. Mörgum finnst þó sigin grásleppa góð. Best að drífa sig á "Sægreifann" og fá sér rauðmaga við fyrsta tækifæri. kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 10.3.2008 kl. 21:47
Sæl Kolbrún, já þar er svo ótryggt með veiðar á þessum árstíma vegna veðurs, ég veit samt ekki hvernig þessi dagkvóti er uppbyggður, en ef hann er yfir ákveðið tímabil, þá gæti jafnvel farið svo að ekki gæfi á sjóinn á þeim tíma. Sægreifinn er málið, alltaf frábært að borða þar.
Ester Sveinbjarnardóttir, 10.3.2008 kl. 21:54
Gleymi aldrei þessum tíma á vorin þegar slebban kom og svo hrogn og lifur og allt hitt sem lifði í hafdjúlpinu. Svo var látið signa og hanga, þvílíkur herramannsmatur sem maður ólst upp við og veisla fyrir bragðlaukana. Fer alveg í trans þegar ég hugsa um þetta.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.3.2008 kl. 23:09
Merkilegt að sjá annað bloggið í röð að tala um grásleppuna og rauðmagann. Ég á svona grásleppukofaminningar frá Ægisíðunni, þegar Guðmundur teiknikennari fór með okkur unglingana að teikna grásleppukofana sem settu svip á umhverfið þar. Mjög skemmtilegt umhverfi, en ég er svolítil pempía þegar kemur að fiski og hrifnust af soðinni ýsu með kartöflum og smjöri. Hér á Álftanesinu er líka mikil grásleppuhefð, þannig að eitthvað sækir maður í þetta umhverfi, það er alla vega víst.
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 11.3.2008 kl. 00:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.