Til umhugsunar

Fékk þetta sent til mín í pósti

Þetta ætti sennilega að vera límt á spegilinn á baðinu hjá þér þar sem þú getur lesið þetta á hverjum degi. Þú gerir þér kannski ekki grein fyrir því en þetta er 100% satt!

 

1.   Það eru að minnsta kosti tvær manneskjur í þessum heimi sem þú myndir deyja fyrir.

2.   Það eru að minnsta kosti 15 manns í þessum heimi sem elska þig á einhvern hátt.

3.   Eina ástæðan fyrir því að einhver hati þig er, viðkomandi vill vera eins og þú.

4.   Bros frá þér getur fært einhverjum hamingju, jafnvel þótt viðkomandi líki ekki við þig.

5.   Á hverju kvöldi, hugsar EINHVER til þín áður en viðkomandi fer að sofa

6.   Þú ert himinn og jörð hjá einhverjum.

7.   Þú ert einstök og sérstök í þessum heimi

8.   Einhver sem þú þekkir ekki, elskar þig.

9.   Jafnvel þegar þú klúðrar málunum, verður eitthvað gott úr því.

10. Þegar þér finnst heimurinn hafa snúið í þig baki, líttu aftur á.

11. Mundu alltaf eftir hrósum sem þú færð. Gleymdu dónalegum hreitum.

 

Þannig að.............Ef þú ert elskulegur vinur, þá sendu þetta til allra , einnig þess sem sendi þér þetta. Ef þú færð þetta til baka þá veistu að þeir elska þig í alvöru.

Já og mundu.........þegar lífið afhendir þér Sítrónu /Lime, biddu þá um Tequila og salt!

 

Íslenskað : Skúli Magnússon

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Flott, þarf að pæla aðeins í þessu.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 29.5.2007 kl. 20:14

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Alveg frábært, takk fyrir að setja þetta á netið. Hafðu það gott.

Ásdís Sigurðardóttir, 29.5.2007 kl. 20:39

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Just brilljant, as usual.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 29.5.2007 kl. 23:10

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, trúir þú þessu? En þetta er afar huggulegt, helst mundi ég vilja trúa þessu kæra Ester.

Sigfús Sigurþórsson., 30.5.2007 kl. 01:44

5 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Frábært.

Svava frá Strandbergi , 31.5.2007 kl. 00:04

6 identicon

Svo bara eitt :)

EF ÞÚ BJARGAR LÍFI EINHV. !!!!! ÞÁ ÁTTU HANN !!!!!

Er það ekki kínverska spekin ;)... ..eða ástu hann ?  KV. M.

Magga Grjetars. (IP-tala skráð) 1.6.2007 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband