Konur

Þegar Guð skapaði konuna vann hann seint á sjötta degi þegar engill kom að og sagði við hann:  „Því að eyða svona miklum tíma í þetta?"

Og Drottinn svaraði „ Hefurðu ekki séð upptalninguna á því sem ég  þarf að gera til að skapa hana?"

"Hún þarf að vera vatnsheld en þó ekki úr plasti, hafa meira en   200 hreyfanlega hluta sem alla þarf að vera hægt að skipta um og   hún þarf að geta framleitt hvaða mat sem er, hún þarf að geta   faðmað mörg börn í einu og gefið faðmlag sem eitt og sér læknar   allt frá skrámu til ástarsorgar. Þetta allt þarf hún að gera og   það með aðeins tvær

hendur"

Engillinn varð mjög hrifinn og sagði:

"Bara tvær hendur...það er ómögulegt!"     „Og þetta er bara venjulegt eintak?!"

"Þetta er allt of mikil vinna sem þú klárar ekki í dag, geymdu  þetta þangað til á morgun og kláraðu hana þá"

"Það geri ég ekki" svaraði Drottinn. "Ég er svo nálægt því að  fullgera þetta sköpunarverk sem mun eiga séstakann stað í hjarta   mér.

Hún læknar sig sjálf þegar hún veikist og hún getur unnið 18   tíma á dag".

Engillinn kom nú nær og snerti konuna.

"En þú hefur gert hana svo mjúka Drottinn" sagði hann svo.  "Hún er mjúk", svaraði Drottinn, "En ég hef einnig gert hana sterka því þú getur ekki ímyndað þér hvað hún þarf að ganga í gegn   um og þola. 

Getur hún hugsað?" spurði engillinn.

Drottinn svaraði:

"Hún getur ekki aðeins hugsað heldur einnig rökrætt og staðið í  samningum."

 Engillinn snerti vanga konunar....

"Drottinn, það lítur út fyrir að sköpunarverkið leki! Þú hlýtur að  hafa lagt of miklar byrðar á hana."

"Hún lekur ekki....þetta er tár" leiðrétti Drottinn

 "Til hvers er það?" spurði engillinn.

 Drottinn svaraði:

"Tárin eru hennar leið til að láta í ljós sorg sína, efa sinn, ást  sína, einsemd sína, þjáningu sína og stolt sitt."

 Þetta hafði mikil áhrif á Engillinn sem sagði „Drottinn þú ert snillingur!Þú hefur hugsað fyrir öllu. Þessi kona   er stórkostlegt!"

 Og Drottinn svaraði englinum:   Það er hún svo sannarlega!   Konan býr yfir slíkum styrk að mestu karlmenni undrast hann. Hún  tekst á við hvaða vandræði og getur borið þungar byrgðar á herðum  sér. Hún hefur í hendi sér hamingju, ást og ætlanir. Hún brosir   þegarhana langar að öskra. Hún syngur þegar hana langar að gráta,   grætur þegar hún er hamingjusöm og hlær þegar hún er hrædd .

 Hún berst fyrir því sem hún trúir á. Hún berst við ranglæti. Hún  tekur ekki „nei" sem gilt svar þegar hún sér betri lausn. Hún   gefursjálfa sig svo fjölskyldan geti dafnað. Hún fer með vini   sína tillæknis ef hún óttast um þá.

Ást hennar er skilyrðislaus.

Hún grætur þegar börnin hennar eru sigursæl. Hún er glöð þegar   vinum hennar gengur vel. Hún gleðst þegar hún heyrir af barnsfæðingum og brúðkaupum.

Hjarta hennar brestur þegar ættingi eða vinur fellur frá.En hún  finnur styrk til þess að takast áfram á við lífið.Hún veit að faðmlag og kossar geta læknað brostið hjarta.

Það er aðeins einn galli á henni, sagði Drottinn að lokum:

 

 Hún gleymir því hversu stórkostleg hún er...

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Ég held að þetta innlegg geri femínistafélagið óvirkt.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.4.2007 kl. 01:22

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Frábært og fallegt.

Svava frá Strandbergi , 5.4.2007 kl. 01:48

3 identicon

Dásamlegt Ester! Gott að fara með inn í nóttina. Veit núna hvað ég þarf að muna á morgun

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 5.4.2007 kl. 02:47

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Já! Guð skapaði fyrst karlinn og síðan konuna.  Maður gerir nefnilega "uppkast" áður en maður "hreinskrifar".

Vilborg Traustadóttir, 5.4.2007 kl. 08:43

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Konur

Georg Eiður Arnarson, 5.4.2007 kl. 09:38

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég tel mig heppna konu, börnin mína hafa kennt mér að ég sé stórkostleg og eftir að eiginmaður var alltaf að tala um þetta, skoðaði ég hjarta mitt og ég trúi þeim, ég er stórkostleg, vona að þið séuð líka að fatta þetta hjá ykkur eða búnar að því nú þegar 

Ásdís Sigurðardóttir, 5.4.2007 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband