Skrifað í stein

Sagan segir að tveir vinir hafi gengið í eyðimörk. Á leiðinni fóru þeir að rífast, og annar vinurinn gaf hinum létt á kjammann. Honum sárnaði, en án þess að segja nokkuð skrifaði hann í sandinn; " Í DAG GAF BESTI VINUR MINN MÉR, EINN Á ´ANN!" Þeir gengu áfram þangað til þeir komu að vatnslind og þar fóru þeir út í. Vinurinn sem hafði orðið fyrir hinum áður var nærri druknaður, en var bjargað af vini sínum.  Þegar hann hafði jafnað sig , risti hann í stein; "Í DAG BJARGAÐI BESTI VINUR MINN MÉR FRÁ DRUKNUN". Vinurinn sem bæði hafði veitt honum tiltal og bjargað honum spurði: "Þegar ég sló þig, skrifaðir þú í sandinn, og núna skrifar þú í steininn. "Af hverju?" Hann svaraði:  Þegar einhver gerir þér eitthvað illt áttu að skrifa það í sandinn, þar sem vindur fyrirgefningar getur eytt því. En þegar einhver gerir þér eitthvað gott þá áttu að grafa það í stein þar sem enginn getur eytt því. "LÆRÐU AÐ SKRIFA SÁRINDI ÞÍN Í SANDINN OG GRAFA HAMINGJU ÞÍNA Í STEIN"! Það er sagt að það taki mann eina mínútu að hitta sérstaka manneskju, einn tíma að kunna að meta hana, einn dag að elska
hana, en HEILA ævi að gleyma henni

"GEFÐU ÞÉR TÍMA TIL AÐ LIFA - OG EIGÐU GÓÐAN DAG!"

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Hann er djúpur viskubrunnurinn þinn. Til hamingju með 100 ára afmælið, eða þannig.

Georg Eiður Arnarson, 30.3.2007 kl. 18:27

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Takk Georg, ég vildi svo sannarlega vera svona spök, er ekki eftir mig en með mikla merkingu. 

Ester Sveinbjarnardóttir, 30.3.2007 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband