16.2.2007 | 13:30
Ó já
Leiðbeiningar aftan á þekktri "meik" tegund: "Do not use on children under 6 months old." (auðvitað byrjar maður ekki að mála börnin sín fyrr en þau eru orðin 7 mánaða!!!).
Leiðbeiningar á Sears hárblásurum: "Do not use while sleeping" (Einmitt þegar mér finnst skemmtilegast að dúlla í hárinu á mér).
Þetta stóð á umbúðum utan af Dial sápu: "Use like regular soap" (Og hvernig á aftur að nota svoleiðis?)
Á umbúðum af SWANN frystimat: "Serving suggestion: Defrost" (Mundu samt...þetta er bara uppástunga).
Hótel lét baðhettu í boxi fylgja með hverju herbergi, og á boxinu stóð: "Fits one head." (Sérðu ekki fyrir þér...einhverja tvo vitleysinga... með eina baðhettu...).
Á botninum af Tiramisu dessertinum frá Tesco stendur: "Do not turn upside down." (Úps, of seinn)
Þetta stendur á búðing frá Marks & Spencer: "Product will be hot after heating." (Það er nefnilega það)
Á pakkningum á Rowenta straujárni: "Do not iron clothes on body." (En myndi það nú ekki spara mikinn tíma!).
Á hóstameðali fyrir börn frá Boots: "Do not drive car or operate machinery" (Þannig að Gunni litli fær ekkert að leika sér á lyftaranum þegar hann kemur heim).
Á flösku af "Nytol sleep aid" má sjá þetta: "Warning: may cause drowsiness" (Maður skyldi nú rétt vona það!).
Hnífasett frá Kóreu var merkt þannig: "Warning keep OUT OF children" (oký dókí!!!)
Jólasería frá Kína var merkt á eftirfarandi hátt: "For indoor or outdoor use only" (En ekki hvar...???).
Matarvinnsluvél frá Japan var merkt svona: "Not to be used for the other use." (Ok...núna er ég orðinn mjög forvitin).
Hnetupoki frá Sainsburys: "Warning:contains nuts" (Jamm... ég fer mjög varlega).
Á poka af hnetum frá Amerísku flugfélagi stóð þetta: "Instructions: open packet, eat nuts"
(Imbafrítt eða hvað?).
Leiðbeiningar sem voru á miða með blá, hvít og rauðköflóttri skyrtu segir: "Munið að þvo liti aðskilda" (Ehhh...já...áttu nokkuð skæri).
Leiðbeiningar á ónefndri örbylgju popp tegund segir manni að "taka plastið af áður en sett er í örbylgju" Málið er, að til að geta lesið leiðbeingarnar verður þú að vera búinn að taka plastið af og fletta pokanum í sundur...Framan á kassa af "Töfradóti" fyrir krakka, er mynd af strák sem er klæddur eins og töframaður.
Aftan á kassanum stendur: "Notice, little boy not included" (Ohhhhh.......ég sem var farin að hlakka svo til að eignast vin).
Ég keypti svona kisunammi fyrir köttinn minn. Á pokanum stendur "new and improved shapes"
(Aaaa...einmitt það sem kötturinn minn er búinn að vera að nöldra út af).
Lítill miði var festur á "Superman" búning, á honum stóð: "Warning: This cape will not make you fly" (Núúúúú...þá kaupi ég hann ekki).
Á keðjusögum stendur oft viðvörunin "Do NOT touch the rotating chain" (Er það ekki nú nokkuð ljóst..haaaa??).
Eitt sem ég skil ekki "Waterproof" maskarar...á þeim stendur:> "Washes off easily with water"
(Hmmm...hver er þá tilgangurinn?).
Athugasemdir
Góð.kv. Gea.
Georg Eiður Arnarson, 16.2.2007 kl. 16:56
Blessuð, var að rekast á bloggið þitt og þessa yndislegu færslu. Alltaf hollt og gott að hlægja hressilega :)
Kveðja, Anna Málfríður (www.annamalfridur.blogspot.com)
p.s. ég stalst til þess að setja þetta inn á bloggið mitt!
Anna Málfríður (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 17:48
Virkilega gott aðhlátursefni er enn að jafna mig he he...
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 17.2.2007 kl. 23:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.