Færsluflokkur: Hugleiðsla
13.8.2007 | 01:45
Gullkorn
Ástin er kjarninn í öllu fögru og orkan í öllu dásamlegu.
10.8.2007 | 08:20
Gullkorn
Lífið verðlaunar þá sem gefast ekki upp.
8.8.2007 | 23:07
Gullkorn
Gefðu hamingunni tækifæri og hún mun gera eitthvað stórkostlegt úr lifi þínu.
8.8.2007 | 22:55
Gullkorn
Svo skrítið sem það er þá elska ég lífið yfirleitt heitt og innilega og þó inn á milli gefi á bátinn, myrkrið læðist að og liti tilveruna gráma trega og fjarlægðar þá vaknar alltaf aftur upp trúin á að allt gangi upp og hamingjan verði mín enn á ný.
Þetta er spennandi verkefni sem við höfum tekið að okkur, það að lifa lífinu, og þó smærri atriði trufli stundum og ráðist oft af umhverfinu þá eru meginlínurnar ljósar og stóra markmiðið, það að ná meiri þroska á lífsleiðinni, alveg ljóst og kristaltært.
Lífsgangan getur stundum verið skrautleg, óvænt, ánægjuleg, sorgleg, erfið, jafnvel grimm, en allt er þetta skraut eitt þegar horft er á heildarmyndina og fyrst fremst tækifæri til að manni kost á að læra meira um sjálfan sig og aðra og þannig ná meiri þroska.
Skemmtilegt, fróðlegt, spennandi og oftast bara býsna ánægjulegt, er hægt að biðja um meira af einu æviskeiði.

8.8.2007 | 00:15
Gullkorn
Djúp vinátta er eins og regnboginn, þegar jafnvægi er á milli gleði og tára verður útkoman litskrúðug brú á milli tveggja hjartna.
7.8.2007 | 14:47
Gullkorn
Það er ekki hægt að viðhalda friði með valdi aðeins með skilningi. (Albert Einstein)
6.8.2007 | 23:47
Gullkorn.
Okkar hegðun mótar barnið öðru fremur.
6.8.2007 | 23:45
Gullkorn.
Betra er að spyrja og vera kjáni í fimm mínútur en verað vitlaus alla ævi .
6.8.2007 | 23:44
Gullkorn.
Sérhver heilagur maður á sér fortið og sérhver syndari framtíð.
6.8.2007 | 23:43
Gullkorn.
Augnablikið varir í skúndubrot en minningin varir að eilífu.