Færsluflokkur: Bloggar

Hver tekur við af Bush í október

Það kom svo sem ekki á óvart að Obama tæki við útnefningu sem forsetaefni, en það er vissulega spurning hvort það sé of stór biti fyrir BNA að kjósa sér þeldökkan forseta.  Það geta allir verið sammála að Obama er hæfileikaríkur og vel að því kominn að taka við sem forseti Bandaríkjanna.  Hann tæki þá við af forseta sem flestir geta verið sammála um að hafi staðið sig verr en aðrir forsetar Bandaríkjana hingað til.
mbl.is Obama fellst á útnefningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stelpurnar okkar!

Frábært hjá stelpunum, vonandi á þeim eftir að ganga vel í Evrópukeppninni, ekki dónaleg viðbót við fótboltasnillingana okkar.
mbl.is Íslenskur sigur á Sviss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðilegt sumar, þegar frýs saman sumar og vetur segir þjóðtrúin.



Um leið og ég óska bloggvinum gleðilegs sumars og þakkar jákvæð og gefandi samskipti á liðnum vetri, þá langar mig að deila með ykkur því sem mér var sagt í æsku um hvað það táknar þegar frýs saman sumar og vetur.

Þá verður sumarið betra undir bú.  Það er ekki í þeirri merkingu að sumarið verði hlýrra en önnur sumur.  Þegar sumar og vetur frýs saman þá fer nýgræðingurinn seinna af stað og er til staðar þegar ærnar bera á vorinn.  Ærnar elta svo nýgræðinginn upp eftir fjallinu og ná þannig næringa besta grasinu langt fram á sumar.  Nytin úr þeim verður feitari og meiri allt sumarið, en bændur nýttu hana, gerðu úr henni skyr og smjör sem var geymt til vetrar.  Nú verða lömbin feitari og stærri þegar þeim er slagtað að hausti.


mbl.is Vor í lofti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jákvætt skref.

Það er ekki spurning að hér er á ferðinni mjög áhugavert samstarf sem á eftir að styrkja bæði Ísland og Mexíkó. 

Hér er verið að virkja frumkrafta lífsins, hugvit, vatnið, sjóinn og líkamlega orku. 

Því fleirri ríki sem taka sig til og virkja vatns og hitaorku jarðarinnar eykur lífsgæði okkrar allra í heild.  Það er ekki vafamál að jörðin er ein heild og það sem einn gerir skiptir alla máli.  Þetta er gríðarlega mikið tækifæri fyrir háskólana okkar að komast í samband við rauverulegt uppbyggingastarf og á væntanlega eftir að skila sér í betri námsárangri og hæfara fólki þegar fram líða stundi.

Hér sýnir Ólafur Ragnar enn og aftur hversu umhugað honum er um árangur þjóðarinnar í heild.


mbl.is Samvinna Mexíkó og Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill hagvöxtur í Kína

Laun í Kína hjá sérhæfðu fólki hefur aukist gríðarlega undanfarin ár.  Kostnaður við framleiðslu á vörum þar hefur því farið hækkandi og mikill munur á því sem var t.d. fyrir 2 árum.  Verðbólgan er fylgifiskur þessa efnahagsbóta, rétt eins og við íslendingar þekkjum svo vel á eigin skinni.


mbl.is Verðbólga 8,7% í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grásleppa og rauðmagi

Mér finnst gott að smakka rauðmaga á vorin, en grásleppan er ekki góður matur, nema auðvitað hrognin sem er herramannsmatur.  En gaman að fylgjast með árstíðarskiptum veiða, voandi gengur vertíðin vel, það er búið að gefa á bátinn hjá sjómönnum sl. ár.
mbl.is Græjað á grásleppuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klók er hún frú Clinton

Hún er með þessu að bjóða fólki uppá að kjósa konu í fyrsta skiptið í USA sem forseta og svartann varaforseta.  Þá fær fólkið allt í einum pakka, auðvitað er Barack ekki sáttur.
mbl.is Útilokar framboð með Clinton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumir eru hreinlega ekki feigir.

HaloMikið getum við verið stolt af okkar hjálparsveitafólki, alltaf tilbúið að koma mannslífum til bjargar.  Annars alveg lygilegt hversu maðurinn slapp vel þarna fyrir horn.

 


mbl.is Bjargað úr sjálfheldu á klettasyllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klárlega skortu á einhverju öðru hugmyndum

Vits er þörf
þeim er víða ratar.
Dælt er heima hvað.
Að augabragði verður
sá er ekki kann
og með snotrum (Hávamál)

Hann þarf klárlega að hitta okkar ástkæru snotru mannanafna nefnd.


mbl.is Vill nefna soninn eftir uppáhalds bjórnum sínum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegur fjandi!

Hversu upptekið fólk er af athöfnum sem taka ekki meiri tíma fá þeim en þetta.  Svo hafa kannanir bent til þess að menn geri það ekki oftar en ca. 1 - 3 í viku.  Samkvænmt þessu fer mun meiri tími í að bera út sorpið í tunnuna.  Ég tala nú ekki um bloggið.
mbl.is Kynmök taki sjö til þrettán mínútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband