11.5.2008 | 19:25
Gullkorn
Ekkert er ofviða þeim sem elskar.
Síseró
Síseró
10.5.2008 | 21:07
Gullkorn
Hversu agnarlítið brot af endalausu ómæli tímans fellur ekki í hlut sérhvers okkar!
Hve fljótt er það ekki að týnast í eilífðinni! Hve smár er hann ekki þessi moldarköggull sem við ráfum um!
Hygg að öllu þessu og einsettu þér að meta lítils allt annað en þetta tvennt: að breyta eftir leiðsögn náttúrunnar og að taka því sem að höndum ber.
Markús Árelíus
8.5.2008 | 07:50
Gullkorn
Að þeim kjörum sem auðnan hefur búið þér skalt semja þig. Og þeim mönnum sem örlögin hafa leitt á þinn fund skaltu unna af öllu hjarta.
Markús Árelíus
Markús Árelíus
7.5.2008 | 21:53
Gullkorn
Værum við sjálf laus við galla, gleddi það okkur ekki svo mjög að sjá þá hjá öðrum.
Hóras
Hóras
4.5.2008 | 18:22
Gullkorn
Kostaðu kapps þegar móti blæs að halda hugarró þinni.
Hóras
Hóras
4.5.2008 | 18:20
Gullkorn
Guð einn megnar að hefja til vegs hið lægsta en beygja í duftið þann sem hreykir sér hátt og bregða á það sem er skugga hlið skærri birtu.
Hóras
Hóras
3.5.2008 | 19:18
Gullkorn
Vonin er sá vængjaði hnoðri sem hreiðrar um sig í sál minni og syngur þar söngva án orða og þagnar aldrei. En fegurst syngur hann þó þegar á móti blæs.
Emily Dickinson