Grín

Kæru vinir!

Nú þegar árið 2007 hefur runnið sitt skeið, langar mig að nýta tækifærið og þakka fyrir alla tölvupóstsendingarnar sem ég hef fengið frá ykkur. Ég verð að segja að lífsgæði mín hafa aukist til muna við sendingarnar.

Takk til þess (hver sem það nú var) sem sendi mér upplýsingarnar upp að það hefði í mörgum tilfellum fundist rottuskítur í límröndinni á umslögum. Þær dýrmætu upplýsingar leiddu  til þess að ég nota nú votan klút í hvert skipti sem ég þarf að loka umslagi. Af sömu ástæðu finn ég mig nú knúna til að þvo hverja dós sem ég þarf að opna.

Í dag á ég heldur ekkert sparifé, þar sem ég hef sent það allt til litlu veiku stúlkunnar (Penny Brown) sem er akkúrat núna í andaslitrunum á sjúkrahúsinu í 1.387.258 skiptið.

Ég á í rauninni enga peninga lengur. en það mun náttúrulega breytast um leið og ég fæ 500.000$ sem Microsoft ætlar að senda mér fyrir að hafa verið "exclusivur" þáttakandi í e-mail prógramminu þeirra. Ég á líka von á aur frá miðaldra getulausum bankastarfsmanni frá Nígeríu sem hefur lofað að
deilda 7 milljónum$ með mér. Aur sem hann erfði eftir að gleymdur ættingi hans lést í skelfilegu umferðarslysi í höfuðborginni Abuja. Yndislegur maður hann Ade Oluwa! Alveg sérstök sál.

Sem betur fer þarf ég ekki að óttast um sál mina, þar sem ég er blessuð með 363.214 englum sem passa mig og vakta sérhvert spor mitt og St. Helena hefur líka boðist til að uppfylla allar mínar óskir.

Mig langaði bara að segja ykkur frá því að ég nota ekki lengur krabbameinsvaldandi svitalyktaeyði, þrátt fyrir að ég lykti illa af svita á heitum sumardegi. Ég er alveg hætt því!


Takk fyrir að sýna mér og kenna að óskir mínar muni aldrei verða uppfylltar nema ég áframsendi tölvupóstana mina til amk 7 einstaklinga á innan við 5 mínútum.

Ég vil einnig þakka ykkur fyrir að hjálpa mér með að hætta að drekka Coca Cola, og upplýsa mig um að það megi hreinlega fjarlægja kalkúrfellingar úr salernum með því.


Ég set aldrei lengur bensín á bílinn hjá Olís án þess að vera vakandi fyrir því að pólskur fjöldamorðingi sem komist hefur ólöglega inn í landið, gæti mögulega hafa laumað sér á í aftursætið meðan ég fylli tankinn.


Ég svara ekki lengur neinum sms-um, þar sem það kostar mig 25.000 kr. að svara ákveðnum númerum.

Fyrir tilstuðlan vingjarnlegar ráðlegginga, get ég nú ekki lengur leyft mér að beygja mig eftir krónu sem liggur á götunni, þar sem það liggur eflaust kolóður kynferðisglæpamaður undir bílnum og bíður þess að geta gripið í fæturna á mér og dregið mig til sín og nauðgað mér.


Ef þú sendir ekki þennan tölvupóst til amk 144.000 einstaklinga á næstu 70 mínútum, þá mun risavaxin dúfa með svæsin niðurgang lenda á höfðinu á þér kl. 17 nú í dag og flær úr 12 mongólskum kameldýrum munu skríða inn í bakið á þér og orsaka að rassinn á þér verður allur kafloðinn.

Og svo langar mig bara líka að deila því með ykkur að Suðuramerískur vísindastúdent sem ég þekki hefur eftir langar og strangar rannsóknir uppgötvað að aðeins einstaklingar með lága greindarvísitölu, sem stunda lítið kynlíf eru manneskjurnar sem alltaf lesa alla tölvupósta með höndina á músinni.

Lifið svo innilega heil.

(Fékk þetta sent með tölvupósti. Höfundur óþekk(t)ur)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Oh my God !

hver var að tala um að upplýsingatæknin væri ekki bráðnauðsynleg ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.1.2008 kl. 22:29

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtilegur þessi póstur, fékk hann í vikunni. 

Ásdís Sigurðardóttir, 19.1.2008 kl. 22:49

3 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Þetta er algjör snilld! 

Ég þoli ekki þessa pósta þar sem maður á að senda til baka innan ákveðins tíma til að verða hamingjusamur og alla þessa betlipósta vegna veikra barna. Þetta er bara peningaplokk og emaila veiðarar.

Kveðjur til þín.

Margrét St Hafsteinsdóttir, 20.1.2008 kl. 00:16

4 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Georg Eiður Arnarson, 20.1.2008 kl. 19:17

5 Smámynd: Guðný Einarsdóttir

Þetta er frábært,fékk þennan líka sendan,

Guðný Einarsdóttir, 21.1.2008 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband