Kuldaþol Íslendinga

+15°C
Fólkið á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga.
Íslendingar liggja í sólbaði.


+10°C
Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang. 
Íslendingar planta blómum í garðana sína. 


+5°C
Bílar á Ítalíu neita að fara í gang.

Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.


0°C
Eimað vatn frýs.
Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkra. 


-5°C
Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða. 
Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.


-10°C
Bretar byrja að kynda húsin sín.
Íslendingar byrja að nota langerma boli. 



-20°C
Götusalar byrja að flýja frá Mallorca. 
Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð!



-30°C
Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar.
Íslendingar hætta að þurrka þvott úti. 



-40°C
París byrjar að gefa eftir kuldanum. 
Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.



-50°C
Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum.
Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir alvöru 
vetrarveðri.



-60°C
Mývatn frýs.
Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við.



-70°C
Jólasveinninn heldur í suðurátt.
Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt 
úti. Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.



-183°C
Örverur í mat lifa ekki af.
Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.



-273°C
Öll atóm staðnæmast vegna kulda! 
Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.



-300°C
Helvíti frýs!
Ísland vinnur Eurovision!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er nú algjör snilld hjá þér. Svo ótrúlega mikið til í þessu hita/kulda skyni okkar.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.9.2007 kl. 21:36

2 Smámynd: Sunna Dóra Möller

LOL

Sunna Dóra Möller, 8.9.2007 kl. 21:37

3 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Reyndar ekki eftir mig, fékk þetta í tölvupósti, en við eygjum þó von um að vinna Eurovision ;)

Ester Sveinbjarnardóttir, 8.9.2007 kl. 21:40

4 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Georg Eiður Arnarson, 8.9.2007 kl. 23:00

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Afar týpskt íslenskt dæmi he he...

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 9.9.2007 kl. 00:51

6 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

hehehehe...........við eigum þá von í Eurovision.................

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 10.9.2007 kl. 13:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband