Kornsúra. (Bistorta vivipara)

kornsuraJurtin gefur hlífðarhúð (hrúðrar) og styrkir, hún er því góð við blæðingum og niðurgangi.  Hægt er að búa til seyði úr rótinni, sem drekka skal hálfan bolla af í senn, 4 sinnum á dag.  Af dufti rótarinnar skal taka eina teskeið, þrisvar á dag með vatni eða mysu. Gott er að sáldra duftinu í opin illa lyktandi vessafull sár.  Það dregur úr blæðingum í skurðum.  Sé fræ jurtarinnar þurrkað er t.d. hægt að sjóða það í mjólk, er seðjandi og ekki svo ólík bóghveit, sem er af súruætt eins og kornsúran.  Úr rótinni má lita svar, ef hún er soðin með járnoxið, sem fæst sumstaðar hérlendist t.d. á Reykjanesi.

Kornsúran er mjög algeng íslensk jurt vex í mólendi, mýrum og á fjallamelum svo eitthvað sé nefnt.  Hún finnst frá láglendi upp í 1150 m hæð í fjöllunum.  Hæstu fundarstaðir eru í 1290 m í Steinþórsfelli í Esjufjöllum, 1240 m á Staðargangnafjalli á Tröllaskaga, og í 1220 m í hlíð Litlahnjúks í Svarfaðardal og í Kirkjufjalli við Hörgárdal.

 

Mynd af www.halldorv.com  Eftir Halldór K. Valdimarsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Rosalega ertu klár.

Georg Eiður Arnarson, 24.3.2007 kl. 20:57

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Ég læt það nú vera er bara að grúska í hinu og þessu.

Ester Sveinbjarnardóttir, 24.3.2007 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband