Ráðleggingar til kvenna

1.   Hafðu  kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma.  Það veitir honum þá  tilfinningu að  þú  hafir  verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans.  Flestir karlmenn  eru  svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af  því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karmönnum nauðsynlegt.

2.   Notaðu  15mín. til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur.  Hann er  að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.

3.   Taktu  upp  allt  rusl og dót.  Farðu eina umferð um húsið og safnaðu  saman skólabókum,  leikföngum,  pappírsrusli  og blöðum.  Renndu svo tusku yfir borðin til  að þurrka af og þrífa svolítið.  Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann.
 
4.   Snyrtu  börnin  til.   Það  tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit  og  greiða  þeim.. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt.  Þau eru  hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.

5. Sjáðu  til  þess  að  húsið  sé  hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum,  s.s. uppþvóttavél,  þvottavél, þurrkara og ryksugu.  Reyndu að sjá til þess að  börnin hafi hljótt.  Taktu á móti honum með glöðu brosi.


6.   Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur. Ekki heldur kvarta  þó  hann komi of seint í mat.  Þú getur verið viss um að þínar  kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn.

7.   Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt.  Láttu hann halla sér aftur á bak í  hægindastól  eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúmið. Vertu tilbúinn með kaldan eða heitan drykk handa honum.  Bjóddu honum að klæða hann úr skónum  og  hagræddu  púðunum  undir  honum.  Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu.  Leyfðu honum að slaka á.

8.  Láttu hann ráða kvöldinu.  Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða  á  aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima.
 
10.   Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag.

Þessar reglur eru teknar úr kennslubók í heimilisfræði síðan 1950.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Óli Helgason

með fullri virðingu fyrir konum, ætli svona konur séu til í dag?, ég held að ég myndi ekki búa með svona konu.

Hallgrímur Óli Helgason, 31.8.2007 kl. 21:43

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Fróðlegt að sjá hversu fjarlægt þetta er okkar tíma hugsun, aðeins 57 árum síðar ;)

Ester Sveinbjarnardóttir, 31.8.2007 kl. 22:28

3 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Hvað ætli mörg hjónabönd í dag entust betur ef þetta væri svona?  Auðvitað eru þetta "barn síns tíma" reglur þegar karlar unnu úti og konan var heima. Ættum að prófa þetta stelpur!

Vilborg Traustadóttir, 31.8.2007 kl. 23:03

4 Smámynd: Hulda Dagmar Magnúsdóttir

Ég þyki nú húsmóðir frá helvíti í dag ........... maður lifandi hvað ég hefði nú verið vonlaus á þessum tíma..... ekki að undra þótt amma sé enn að reyna að temja mig

Hulda Dagmar Magnúsdóttir, 31.8.2007 kl. 23:24

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Mikið er gott að vera gamall dags

Georg Eiður Arnarson, 31.8.2007 kl. 23:46

6 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

He he  alveg stórkostlega fyndið,  þvílíkur og annar eins undirlægjuháttur fyrirfinnst vart nú til dags eða hvað ?

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 1.9.2007 kl. 00:47

7 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Ég er hrædd um að ef nútímamaðurinn mætti svona framkomu, þá myndi hann farast af áhyggjum! Hvað væri eiginlega í gangi.... hvað hafði konan gert af sér... eða öfugt ef maðurinn tæki uppá því að taka svona á móti konunni sinni þegar hún kæmi þreytt heim úr vinnunni ;)

Ester Sveinbjarnardóttir, 1.9.2007 kl. 06:08

8 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Sirrý mín, þú gerðir eins og þú gast, vissir bara ekki betur

Ester Sveinbjarnardóttir, 1.9.2007 kl. 11:10

9 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Þetta er eins og reglur um meðhöndlum og framkomu við sjúkling, þá helst geðsjúkling, en ekki karlmann

Margrét St Hafsteinsdóttir, 4.9.2007 kl. 00:10

10 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Sæl Margrét, ég get rétt ímyndað mér það að það hafi ekki verið sama hvort sjúklingurinn var kona eða karl.  Geðsjúkir fengu líka svo sannarlega að kenna á fordómum.

Ester Sveinbjarnardóttir, 4.9.2007 kl. 10:53

11 Smámynd: Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar

Á ekki bara að pakka þeim inn í bómull líka? Díses hvað þetta er eitthvað undirgefið. Hefði viljað sjá framan í kallinn, ef ég kæmi svona fram við hann. Annars er ég sammála því, að þetta virðast frekar vera leiðbeiningar um meðhöndlun á mjög veikri manneskju.

Matthilda M. Eyvindsd Tórshamar, 4.9.2007 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband