Færsluflokkur: Bloggar

Starfsgreinasambandið hvetur til sundrungar meðal félagsmanna sinna

Samstaða bræðslumanna var ekki mikil hér á dögunum, greinilegt að Starfsgreinasambandið hefur ekki tekist að skapa samstöðu meðal félagsmanna sinna. En hvernig má það vera þegar félagið einbeitir sér að því að blanda sér í erfið pólitísk málefni. Ég vissi ekki betur en að hlutverk sambandsins væri að sameina verkalýðsfélög í baráttunni fyrir bættum kjörum og standa vörð um áunnin réttindi. Einnig að vera leiðandi afl innan verkalýðshreyfingarinnar og vettvangur umræðu um þróun samfélagsins í þágu launafólks.
Hvernig geta þeir þá mælt fyrir um slíkan kostnaðarauka sem icesave er, málefni sem hæstaréttalögmenn eru búnir að segja þjóðinni að henni beri ekki lagaleg skylda að greiða.
Hér eru menn að tala fyrir hagsmunum þeirra sem raunverulega eiga að borga icesave, því það eru þeirra hagsmunir að láta þjóðina borga brúsann. Okkur finnst sjálfsagt að geta farið til lækna og sent börn okkar í skóla. Keypt gjaldeyri til að ferðast fyrir, ef þjóðin þarf að greiða icesave eru slíkir hlutir skornir niður eða stórkostlega skertir.
Sinnið frekar ykkar hlutverki, hættið afskiptum af lýðræðinu í landinu, við almenningur erum á þessum tíma þakklát forsetanum fyrir að hafa heilbrigða skynsemi.
mbl.is Óviðunandi ábyrgðarleysi forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Almenningur fær kaldar kveðjur frá Alþingismönnum!

Þessi grein var felld úr icesave samningnum sem Alþingismenn samþykktu og forseti lýðveldisins vísaði í dóm þjóðarinnar.8. gr. Endurheimtur á innstæðum.Ríkisstjórnin skal þegar í stað grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana sem þarf til að endurheimta það fé sem safnaðist inn á Icesave-reikningana. Í þeim tilgangi skal ríkisstjórnin fyrir 15. október 2009 hafa frumkvæði að samstarfi við þar til bæra aðila, m.a. yfirvöld í Bretlandi, Hollandi og Evrópusambandinu, og óska aðstoðar þeirra við að rekja hvert innstæðurnar af Icesave-reikningunum voru fluttar. Ríkisstjórnin skal fyrir árslok 2009 semja áætlun um hvernig reynt verður að endurheimta það fé sem kann að finnast.Í því skyni að lágmarka ríkisábyrgð samkvæmt lögum þessum skal ríkisstjórnin einnig gera ráðstafanir, í samráði við þar til bæra aðila, til þess að þeir sem kunna að bera fjárhagsábyrgð á þeim skuldbindingum sem stofnast hafa vegna Icesave-reikninganna verði látnir bera það tjón.

Hreyfingin lagði fram breytingartillögu um að setja þessa grein aftur inn en hún var felld af meiri hluta þings, þar með talið sjálfstæðismönnum. Með því að fella út þessa grein dregur verulega úr því að hinir seku verði dreginr til ábyrgðar.

 

Halló! er þetta ekki glórulaust??? 

sjá nánar á http://www.svipan.is/?p=21780


Opið bréf til Jóhönnu og Steingríms vegna sprengigossins í Eyjafjallajökli!

Innilokuð undir jökli í öskufalli og eldglæringum!

Ástandið undir Eyjafjöllum er skelfilegt ég vitna í frænku mína sem býr með manni sínum undir jökli með fjögur lítil börn og skepnur. "Um kl.4:00 í nótt vökunuðum við við eldingarna það var eins og sprenging,hef sjaldan verið eins hrædd,og ég sem þoli ekki eldingar,nú er svarta myrkur." En þessi ótti frænku minnar er engin taugaveiklun heldur á rökum reistur, mjög eðlilegur ef við skoðum Íslandssöguna. Sögur hafa farið af því að fólk hefur látist af völdum eldinga úr eldgosum.
Þetta er staðreynd sem blasir við fólkinu fyrir austan, á jörðina sem liggur í beinni loftlínu frá goskatlinum liggur nú þegar 10 cm þykkt lag af ösku. Við sem vitiborið fólk gerum okkur grein fyrir að þarna verður ekki byggilegt næstu árin. Það er sárara en tárum taki að vita af sínu fólki bjargarlausu við þessar aðstæður.
Ég upplifði gosið í Vestmannaeyjum þegar ég var lítli stúlka undir austur Eyjafjöllunum. Þar var hægt að koma öllu fólki og skepnum í burtu á sólarhing!
Ég leyfi mér að fullyrða að hvergi í heiminum væri komið svona fram við fólkið eins og fólkið mitt fyrir austan. Hvers vegna er fólk og skepnur ekki flutt í burtu? Er ekki löngu tímabært að ríkisstjórnin sýni manndóm sinn í því að hjálpa fólkinu, hvar er samhjálpin? Björgunarsveitarfólk fyrir austan hefur unnið óeigingjarn starf án endurgjalds í öllum sínum fríum og líka á vinnutíma síðustu 7 vikurnar eða frá upphafi gos í Hruna í Goðalandi.
Er ekki takmörk fyrir því hvað er hægt að leggja á miskunsama Samverjan?
Ríkisstjórnin sendir fólk til hjálpar erlendis á hamfarasvæðum en það er ekki hægt að greiða úr þessum málum hérlendis.

Þið getið hjálpað fólki úti í heimi en sjáið ekki neyð ykkar eigin fólks.

Ég bið ykkur Steingrímur og Jóhanna! Setjið ykkur í spor fólksins sem býr við þessa neyð! Ég á erfitt með að sofna á kvöldin fyrir áhyggjum af fólkinu, hvað þá með þau sem eru með börnin sín í þessum ósköpum.
Það væri hægt að koma skepnum fyrir hjá öðrum bændum til bráðabirgða. Nóg er af sumarbústöðum eða svo kölluðum heilsárshúsum sem fólkið gæti búið í. Einnig standa hús og íbúðir í stórum stíl auð hér í Reykjavík, svo dæmi séu nefnd.
Ég skora á ykkur að hefjast handa án tafar.

Ester Sveinbjarnardóttir frá Yzta-bæli


Hvar er gott að fara með hóp af fólki að borða fyrir austan fjall!

Ég er með 43 manna hóp sem ég þarf að finna matstað að kvöllagi í miðri viku í næsta mánuði.  Eru þið með einhverjar tillögur, ég tek það samt fram að Rauða Húsið á Eyrabakka kemur ekki til greina vegna slæmrar reynslu frá því í fyrra.


Betra seint en aldrei

Ég fagna því að Björgvin G. Sigurðsson skuli finna hvar hjarta þjóðarinnar slær.  Að mínu mati hefur hann valið þá einu leið sem er fær til að sætta þjóð og þing.  Það er sama við hvern ég tala að allir hafa þá sömu sýn að stjórnmálaflokkarnir, þingið og ríkisstjórnin nýtur ekki traust þjóðarinnar.  Aldrei fyrr hefur það gerst að fólk reynir ekki að bera blak af sínum stjórnmálaflokki, heldur viðurkennir fúslega þá spillingu sem blasir við almenningi. 

Framsóknarflokkurinn reið á vaðið og sýndi fylgisaukning hans í síðustu skoðunarkönnun svo um munaði að fólk vill að hið gamla víki fyrir nýju.  Þó nú sé farið að kvisast út að  nýji Framsóknar formaðurinn, sé bakkaður upp af Finni Ingólfssyni og trúi ég að reynist það satt þá muni fylgið dala fljótt aftur.

Þjóðin sér ekki mun á þeim stjórnmálaflokkum sem ekki hafa verið í stjórn og þeim er standa utan þeirra, því ríkir að ég held misskilningur hjá stjórnarandstöðuflokkunum um það að þeir þurfi ekki heldur að gera hreint fyrir sínum dyrum.

 Ég tek hatt minn ofan fyrir Björgvini og trúi ég að þessi ákvörðun hans verði til þess að hann eigi eftir langan feril í stjórnmálum á íslandi.


mbl.is Björgvin segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðileg jól

Kæru bloggvinir, ég óska ykkur friðar og gleði á þessum yndislegu jólum.  Megi ljósið lýsa ykkur og fjölskyldum ykkar.

Er þetta það sem koma skal

Gúmmístígvél


Fíkniefnahundarnir gera ekki manna mun.

Eins gott að hafa hunda við eftirlit, hverjum gæti dottið annað eins í hug.  Ef eldriborgarar fara í ferðalög erlendis er oftast eitthvað annað í þeirra huga en að eitra fyrir æsku landsins.

Síðast þegar ég var á ferðinni frá danmörku með alla fjölskylduna var kíkt í töskurnar hjá mér, ég var frekar hissa, en gott að vita af eftirlitinu.


mbl.is Gæsluvarðhald vegna fíkniefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klukkuð..

Humm.. langar einhvern virkilega að vita þetta?

Fjögur störf sem ég hef unnið um Ævina

0 Kokkur á netabát frá Grindavík 
0 Afleysingaþjónusta bænda, bar áburð, plægði flög, mjólkaði kýr og fl.
0 Vann við kostningaeftirlit hjá Sjálfstæðisflokknum
0 Þjálfaði börn í frjálsum íþróttum hjá ungmannafélagi Austur Eyfellinga

Fjórar Bíómyndir sem ég held upp á
0 Mamma mía
0 Star Trek
0 Lord of the rings
0 Með allt á hreinu

Fjórir staðir sem ég hef búið á

0 Yzta-bæli, A-Eyjafjöllum
0 Ísafirði
0 Hellissandi
0 Reykjavík

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar

0 Fréttir á öllum stöðvum
0 Ísland í dag
0 Kastljós
0 CSI

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríium

0 Kaupmannahöfn
0 London
0 Snæfellsnes
0 Skaftafell

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg

0 mbl
0 visir
0 gmail.com
0 google.com

Fernt sem ég held upp á matarkyns

0 grænn drykkur úr spínati, bönunum, engiferrót og sítrónu
0 avacado, lime, hvítlaukur, tómatar og krydd 
0 mango, mjúkt og dásamlega þroskað
0 kókossúpa úr ungri kókóshnetu

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft

0 Máttur bænarinnar, Norman Vincent peale
0 Haf i dropa, Sigvaldi Hjálmarsson
0 Oriental Rugs, A buyer's guide, Lee Allane
0 Oriental Rugs Symbols, John Train

Fjórir bloggara sem ég klukka

0 Ásdís Ómars
0 Agný
0 Magga Dóra
0 Kokkurinn Guðjón H Finnbogason

Er ekki málið að kaupa vörur frá Mjólku

Þetta var virkileg ánægjuleg lausn og lítið mál fyrir okkur sem viljum sýna hug okkar í verki að kaupa vörur frá Mjólku.

Ég sá þátt þar sem var fjallað um lífshlaup Ástþórs Skúlasonar, virkileg áhugavert.  Hann hefur kostið það að taka fullan þátt í lífsbaráttunni með góðri aðstoð fjölskyldu sinnar, þrátt fyrir líkamlega fötlun.  Virkilegur innblástur fyrir okkur hin sem stundum látum alltof léttvæga hluti trufla okkar daglega líf.


mbl.is Fékk styrk til að leysa út vélarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband